laugardagur, janúar 13, 2007

Surtsey

  Posted by Picasa
Surtsey er syðsta eyjan í Vestmannaeyjaklasanum, en miðpunktur hennar er 63°18'N, 20°36'W. Hún er jafnframt sú eina þeirra sem hefur myndast á sögulegum tíma, eða í mesta neðansjávareldgosi á sögulegum tíma. Menn urðu gossins varir klukkan 7:15 að morgni þess 14. nóvember 1963, þegar það braust upp úr yfirborði sjávar skammt frá fiskibátnum Ísleifi II frá Vestmannaeyjum. Skipverjar mældu sjávarhita í hálfrar mílu (ca. 900m) fjarlægð og reyndist hitastigið vera nálægt 10°C. Gosið magnaðist hratt og varð hár gosmökkur. Daginn eftir árdegis, sást í gosmekkinum að eyja hafði myndast. Er því ljóst að gosið hefur hafist einhverjum dögum áður en þess varð vart. Þann 12. nóvember fannst brennisteinslykt í lofti í suðvestanátt í Vík í Mýrdal, en engra jarðhræringa hafði orðið vart dagana fyrir uppkomu gossins. Gosið stóð fram til 5. júní 1967 eða í um það bil þrjú og hálft ár. Eyjan er um 20 km suðvestur af Heimaey, eða um 30 km suðvestur af Landeyjasandi á meginlandi Íslands.

Surtsey er friðlýst, og er því á náttúruminjaskrá, umferð þangað er aðeins leyfð í vísindaskyni. Surtseyjarfélagið hefur eyjuna í umboði umhverfisstofnunar.

mynd; Sigurjón Einarsson
Texti; Wikipedia